Back to All Events

DUO - flute and natural horn

  • 2 Strandgata Ólafsfjörður, Fjallabyggð, 625 Iceland (map)

DÚÓ

Petrea Óskarsdóttir, flauta Ella Vala Ármannsdóttir, náttúruhorn

~ Prógram ~

Jaques-Francois Gallay

Fanfare úr 12 douze Grands Caprices op 43 fyrir náttúruhorn

Sunna Friðjónsdóttir

A movement in time, fyrir flautu og horn - frumflutningur*

Oliver Kentish

Lífið er LEIK-fimi - eftirspil, fyrir flautu

Daníel Þorsteinsson

To me, to me, fyrir altflautu og náttúruhorn - frumflutningur*

*world premiere

Petrea Óskarsdóttir lauk burtfararprófi í flautuleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1989. Í framhaldinu lá leiðin til Frakklands þar sem hún stundaði framhaldsnám við Conservatoire National de Region í Versölum. Eftir að Petrea flutti aftur heim, haustið 1993, hefur hún verið virkur þátttakandi í tónlistarlífinu og kemur oft fram á tónleikum bæði sem einleikari og í ýmiskonar kammartónlist hérlendis sem erlendis. Hún er einn af þrem flautuleikurum Aulos Flute Ensemble, en þær hafa m.a. komið fram á Myrkum músíkdögum, Sumartónleikum í Skálholti, farið í tónleikaferð til Færeyja og Grænlands auk þess að standa fyrir Windworks hátíðinni á suður- og norðurlandi undanfarin ár. Petrea er einnig fastur meðlimur í Íslenska flautukórnum. Petrea hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frá því hún flutti til Akureyrar vorið 2002, lengst af sem leiðandi flautuleikari.

Petrea vinnur nú að útgáfu á geisladiski með tónlist fyrir einleiksflautur. Petrea hefur alið upp heila kynslóð flautuleikara eftir áratuga starf í mörgum af stærstu tónlistarskólum landsins. Hún kennir nú við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskóla Eyja- fjarðar.

Ella Vala Ármannsdóttir er fædd í Svarfaðardal. Hún stundaði hornnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan blásarakennara- og einleikaraprófi . Síðar hélt Ella Vala áfram námi við Musikhochschule Freiburg im Breisgau, Þýskalandi. Í kjölfarið lauk hún framhaldsnámi í Schola Cantorum Basiliensis í Basel, Sviss við náttúruhornleik. Ella Vala er aukamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, hefur leikið með hljómsveit íslensku óperunnar og er meðlimur Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Á náttúruhornið hefur hún leikið og tekið upp fjölda geisla- og mynddiska vítt og breytt um Evrópu. Ella Vala er síðan 2013 fastráðin sem málmblásturskennari við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskólann á Tröllaskaga.


WindWorks í Norðri er styrkt af:

Uppbyggingarsjóði SSNE, Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Norðurþingi, Akureyrabæ, Menningarsjóði FÍH, Samfélagsstyrks Norðurorku, Tónskáldasjóði Rúv og Stef´s, Listamannalaunum og Istituto Italiano di Cultura í Oslo.

Next
Next
3 August

SOLO - Emma Nicòl Pigato, saxophone